Kennarasmiðjur

Vísindasmiðjan heldur reglulega vinnusmiðjur fyrir kennara. Haustið 2022 voru haldnar fimm vinnusmiðjur fyrir kennara á grunnskólastigi. Næstu smiðjur verða auglýstar þegar dagsetningar skýrast. Sendu tölvupóst á visindasmidjan [at] hi.is ef þú hefur einhverjar fyrirspurnir eða vilt skrá þig á póstlista Vísindasmiðjunnar.

Samfélagstengd stærðfræði

Kennari við töflu Vinnusmiðja fyrir stærðfræðikennara á unglinga- eða framhaldsskólastigi sem vilja kynnast samfélagslegum snertiflötum stærðfræðinnar. Í smiðjunni skoða þátttakendur hvernig nota megi tiltölulega einfalda stærðfræði til þess að fletta ofan af ýmsum samfélagslegum fyrirbærum.

Leikur að samrásum

Samrásaverkefni Vinnusmiðja fyrir náttúrufræðikennara á mið-, unglinga- eða framhaldsskólastigi sem vilja kynnast notkun samrása í rafrásum. Í smiðjunni skoða þátttakendur einfaldar samrásir og setja saman fágaðar rafrásir með skemmtilegri virkni.

Ljósakassinn

Ljósakassi Ljósakassavinnusmiðjan er ætluð kennurum sem vilja kynnast innihaldi ljósakassans, hvernig hægt er að nýta hann í sýnikennslu eða verklegar æfingar fyrir nemendur. Vinnusmiðjan er verkleg þar sem farið er yfir nokkur verkefni sem hægt er að vinna með nemendum.

Microbit tækjaforritun

Microbit verkefni Micro:bit tölvurnar henta vel til forritunarkennslu og mikið til af kennsluefni. Í þessari vinnusmiðju verður farið skrefinu lengra og microbit tölvur tengdar við tæki eins og mótora og skynjara.

Dulkóðun

Kennari við töflu Vinnusmiðja fyrir stærðfræðikennara á unglinga- eða framhaldsskólastigi sem vilja kynnast skemmtilegum aðferðum til að dulkóða skilaboð og stærðfræðinni sem liggur þeim að baki. Farið verður í meðal annars pig pen, Caesar cypher, Playfair, Morse kóða og sitthvað fleira.

Leikur að rafmagni

Rafmagnsverkefni Vinnusmiðja fyrir náttúrufræðikennara á mið- eða unglingastigi sem vilja auka skilning sinn á rafmagnsfræði og leikni sína í einföldum rafmagnsfræðiverkefnum. Markmið vinnusmiðjunnar er að þátttakendur rifji upp eða bæti þekkingu sína og kynnist einföldum verkefnum sem nýta má í kennslu.

Fyrstu skref með Microbit

Microbit tölva Þessi kennarasmiðja er hugsuð sem kynning á Microbit tölvunni og inngangsverkefnum sem hægt er að vinna með nemendum án mikils tilkostnaðar eða undirbúnings. Smiðjan er verkleg og Vísindasmiðjan útvegar micro:bit-ana.

Vísindasýningar

Vísindasýning Þessi kennarasmiðja er á formi menntabúða þar sem kennarar fá ítarlega kynningu á undirbúningi, framkvæmd og námsmati nokkurra ólíkra gerða vísindasýninga í skólastarfi. Farið er yfir þær bjargir sem leita má í og hvað þarf að varast í undirbúningi og framkvæmd.

First Lego League leiðbeinendasmiðja

First Lego League Þessi vinnusmiðja er ætluð fyrir leiðbeinendur liða í First Lego League keppninni sem Háskóli Íslands stendur að hér á landi. Keppnin er margþætt og snertir ekki bara á forritun og verkefnalausn heldur einnig á liðsheild, heilbrigðri samkeppni, rannsóknum og nýsköpun.

Náttúran í gegnum linsuna

Efling á áhuga og skilningi nemenda á náttúrufræði með notkun ljósmyndunar og myndbandstækni

Nemendur í náttúrufræðiverkefni Menntavísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við Vísindasmiðju Háskóla Íslands býður upp á námskeið í notkun ljósmyndunar og myndbandstækni í náttúrufræðikennslu. Námskeiðið er að mestu verklegt. Unnið verður með þemað „Vorkoman í hverfinu“.

Líkanagerð og mælingar

Líkanagerð og mælingar Vinnusmiðja fyrir kennara á framhaldsskólastigi í notkun forritunar til líkanagerðar og mælinga. Notuð verða forritunarmálin Processing og Python og gagnleg verkfæri í kennslu kynnt til sögunnar.

Rafrásir og tækjaforritun

Rafrásir og tækjaforritun Námskeiðið er eins dags námskeið og tekur fyrir nokkur efni til þess að búa til einföld en skemmtileg verkefni með skynjurum, rofum, ljósum og mótorum. Farið verður yfir grunnhugtök í gerð rafrása; spennu, straum og viðnám, auk hliðtengingar og raðtengingar íhluta.