Leikur að samrásum

Kennarasmiðja um samrásir í rafrásum

Vinnusmiðja fyrir náttúrufræðikennara á mið-, unglinga- eða framhaldsskólastigi sem vilja kynnast notkun samrása í rafrásum.

Í smiðjunni skoða þátttakendur einfaldar samrásir, integrated circuits, á við smára, tugteljara og 555 tímarásina til að setja saman fágaðar rafrásir með skemmtilegri virkni.

Þessi smiðja er enn í þróun svo hún mun gera meiri kröfur til þátttakenda en flestar smiðjurnar. Á móti hentar hún sérlega vel kennurum sem vilja ögra sjálfum sér og vera á fyrstu öldum nýjunga.