Samfélagstengd stærðfræði

Kennarasmiðja í samfélagstengdri stærðfræði

Vinnusmiðja fyrir stærðfræðikennara á unglinga- eða framhaldsskólastigi sem vilja kynnast samfélagslegum snertiflötum stærðfræðinnar.

Í smiðjunni skoða þátttakendur hvernig nota megi tiltölulega einfalda stærðfræði til þess að fletta ofan af ýmsum samfélagslegum fyrirbærum. Sem dæmi fá þátttakendur innsýn í virkni reiknirita með hjálp línulegrar algebru, skoða hvað hægt sé að segja um skökk hlutföll í samfélaginu með tölfræði eins og tvíkostadreifingu, hvað rúmfræðin segir okkur um samfélagsleg áhrif heimskorta og af hverju ekki er til neitt sanngjarnt kosningakerfi.