Speglabrunnur

„Einstefnuspeglar“
Hálfspeglar eru oft taldir vera þess eðlis að þeir hleypi aðeins ljósi aðra leið í gegnum sig, þannig að ef speglinum væri snúið við, þá sæist aðeins í hina áttina. Þetta er þó bara mýta og í rauninni er það ljósmagnið sitt hvoru megin hálfspegilsins sem skiptir máli. Þess vegna sést lítið inn um sólgleraugu sem liggja þétt upp að andlitinu þegar þau eru á nefinu á einhverjum, en sé þeim haldið uppi sést jafn vel í gegnum þau sitt hvoru megin.Geisladeilar
Hálfspeglar eru notaðir víðar en bara í skyggð gler. Þeir eru einnig gagnlegir í rannsóknartæki líkt og geisladeila. Það eru hálfspeglar sem skipta ljósgeisla upp í tvennt og senda ólíkar leiðir. Dæmi um notkun geisladeilis er við gerð almynda (e. hologram) og í víxlmælum sem nota má til að mæla afar litlar færslur. Víxlmælar hafa t.a.m. sýnt fram á afstæði hreyfingar og eru notaðir í mælingar á þyngdarbylgjum.


