Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Vísindasmiðjunnar verið önnum kafið við breytingar á smiðjunni. Í morgun rann upp langþráð stund, þegar tekið var á móti fyrstu gestum haustsins. Vísindasmiðjan er nú komin í stærra rými, ýmis tæki og tól hafa bæst í safnið og stöðvar verið uppfærðar. Þar er nú sérstakt myrkraherbergi útbúið tilraunum sem tengjast allar ljósi. Þá hefur verið sett upp hitamyndavél auk fjölmargra annarra skemmtilegra tækja.
Gestir Vísindasmiðjunnar kynnast margs konar vísindagreinum, því auk tilrauna í eðlisfræði fá þeir innsýn í heimspeki vísindanna, jarðfræði og stjörnufræði. Með stækkun smiðjunnar hefur bæst við fræðsla um vindorku og vindmyllur, sem er nýjung í starfseminni.
Fyrstu skólahóparnir sem heimsóttu Vísindasmiðjuna eftir breytingar voru 5. bekkur úr Ártúnsskóla og 8. bekkur úr Norðlingaskóla. Nemendurnir lærðu meðal annars um liti, ljós og rafmagn, auk þess em þeir spreyttu sig á smíði vindmylla. Það var mikið fjör meðan á heimsókn þessara áhugasömu gesta stóð og starfsfólk hlakkar til að taka á móti komandi hópum í stækkaðri og endurbættri smiðju.
Vísindasmiðja Háskóla Íslands var opnuð vorið 2012 í Háskólabíói í því markmiði að efla áhuga ungmenna á vísindum og fræðum með gagnvirkum og lifandi hætti og styðja þannig við kennslu á sviði náttúru- og raunvísinda.