Hin árlega Vísindavaka Rannís fór fram föstudaginn 27. september. Þar gafst almenningi kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra.
Vísindasmiðjan var opin – gestum og gangandi til mikilla ánægju. Starfsfólk Vísindasmiðju sýndi virkni mismunandi tækja og tóla sem smiðjan hefur að geyma og vakti mikinn áhuga.
Til sýnis voru meðal annars ný tæki Vísindasmiðjunnar, svokallaðar Chladni plötur. Þegar brúnir þeirra eru stroknar með hrosshársboga örvast eiginsveiflur platnanna líkt og gerist þegar fiðlustrengur er strokinn með boga, við þetta myndast ákveðið sveiflumynstur og tónn sem lætur skeljasand sem er á plötunum safnast saman á þá staði yfirborðsins sem ekki titra. Úr þessu verða undurfagrar myndir.