Vísindasmiðjan er komin á fullt eftir gott jólafrí og er nú opin á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum.
Vísindasmiðjan er gríðarlega vinsæl hjá kennurum og nemendum og því hefur eftirspurn eftir lausum plássum á vorönn verið mikil. Nú er svo komið að fullbókað er í Vísindasmiðjuna á vorönn. Við hlökkum að til að taka á móti þeim hópum sem eiga bókað pláss. Þeir sem ekki eiga bókaðan tíma þurfa þó ekki að örvænta, því við munum að sjálfsögðu láta vita þegar við opnum fyrir skráningar í haust.