Heimsóknir
Fyrir hverja eru heimsóknir í Vísindasmiðjuna?
VÍSINDASMIÐJAN VERÐUR LOKUÐ Á HAUSTMISSERI 2025 VEGNA BREYTINGA
Heimsóknir í Vísindasmiðju Háskóla Íslands eru opnar kennurum með nemendahópa sína þeim að kostnaðarlausu og nýtast best nemendum í 6. til 10. bekk grunnskóla.
Opið er fjóra daga vikunnar: þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga. Skráning heimsókna fer fram hér á síðunni. Hámarksstærð hópa er 25 einstaklingar og varir heimsóknin um 90 mínútur.
Hvað felur heimsóknin í sér?
Heimsókn í Vísindasmiðjuna er þrískipt:- fræðsla um vísindalegt málefni í austurálmu Vísindasmiðjunnar
- kynning á gangvirkum tækjum og tólum Vísindasmiðjunnar í vesturálmu Vísindasmiðjunnar
- frjáls tími
Fræðslan í austurálmu fer eftir því hvaða starfsmaður er á vakt hverju sinni svo efnistök eru fjölbreytt: umhverfisfræði, stjörnufræði, vindmyllugerð, efnafræði, stærðfræði og sálfræði.
Á verkefnasíðunni okkar má finna ýmis verkefni tengd starfi Vísindasmiðjunnar.
Í vesturálmu eru fjöldi tækja og tóla sem miða að því að sýna ákveðin eðlisfræðileg fyrirbæri á áþreifanlegan hátt. Kynningin fer eftir aldri nemenda; yngri nemendur fá lauslegri yfirferð yfir fleiri og einfaldari muni, en þeir eldri fá yfirleitt dýpra spjall um afmarkaðri fyrirbæri. Í frjálsa tímanum fá þau svo tækifæri til að leika sér og prófa á eigin forsendum.
Hvernig kemst ég?
Vísindasmiðjan
er staðsett í Háskólabíói við Hagatorg. Við strætisvagnastöðina við Þjóðminjasafnið stoppa vagnar 1, 3, 6, og 14. Vagn 12 stoppar á Suðurgötunni og vagn 11 á Hagatorgi, beint fyrir framan Vísindamiðjuna.