Rafrásir og tækjaforritun

Námskeiðið er eins dags námskeið og tekur fyrir nokkur efni til þess að búa til einföld en skemmtileg verkefni með skynjurum, rofum, ljósum og mótorum.

Farið verður yfir grunnhugtök í gerð rafrása: spennu, straum og viðnám, auk hliðtengingar og raðtengingar íhluta. Einnig verður farið yfir notkun fjölmælis til að mæla spennu, straum og viðnám.

Rafrásaverkefni með skynjurum og rofum

Með þessi verkfæri í kistunni verður ráðist á fyrstu verkefnin. Það fyrsta er einfalt: ljóstvistar eru tengdir við rafhlöður og stýrt með hnöppum. Svo er íhlutunum skipt út í litlum skrefum fyrir annars kyns rofa og skynjara þar til rafrásin stýrir aflhungruðu tæki eins og jafnstraumsmótor með smára.

Tækjaforritun og rafrásir í kennarasmiðju

Í síðari hlutanum er farið í gegnum þrjár gerðir algengra mótora, nema sem krefjast stýringar eða aflesturs á tölvu, og tölvur sem geta lesið af skynjurum og stýrt mótorunum. Mótorarnir sem unnið verður með eru jafnstraumsmótorar, servo-mótorar og stepper-mótorar.

Þátttakendur velja hvort þeir forrita með MakeCode ritlinum á micro:bit, Python á Raspberry Pi eða C/C++ á Arduino.

Þátttakendur þurfa að koma með eigin tölvur til að vinna á og til að finna efni á netinu. Þau sem eiga smátölvur eða íhluti eru hvött til að koma með það, en annars úthlutar Vísindasmiðjan kennslugögnum.