Kennarasmiðjur

Vísindasmiðjan heldur reglulega vinnusmiðjur fyrir kennara. Haustið 2022 voru haldnar fimm vinnusmiðjur fyrir kennara á grunnskólastigi. Næstu smiðjur verða auglýstar þegar dagsetningar skýrast. Sendu tölvupóst á visindasmidjan [at] hi.is ef þú hefur einhverjar fyrirspurnir eða vilt skrá þig á póstlista Vísindasmiðjunnar.

Forritun

Þessi kennarasmiðja er hugsuð sem kynning á nokkrum inngangsverkefnum sem hægt er að vinna með nemendum án mikils tilkostnaðar eða undirbúnings. Verkefnin eru:

  • Samþætting forritunar og hefðbundinna námsgreina með Scratch
  • Tækjaforritun með Scratch á Raspberry Pi tölvum
  • Microbit forritun og efnið á Kóðinn.is

Námskeiðið er keyrt í tveimur þriggja klukkutíma hlutum, ýmist á tveimur eftirmiðdögum eða einum degi. Dæmi um dagskrá er að finna neðar á síðunni.

Sphero

Sphero Sprk+ þjarkur

Sphero Sprk+ er lítill þjarkur sem ekur um inni í kúluskel. Honum má stýra með fjarstýringu eða með því að skrifa forrit og senda það yfir á þjarkinn.

Á síðustu árum hafa komið fram margar gerðir þjarka sem henta vel til forritunarkennslu. Hver þeirra hefur ákveðna kosti og galla. Sphero er smár, kvikur og með afar skemmtilega hönnun þar sem þjarkurinn sjálfur ekur um í kúluskelinni eins og hamstur.

BlueBot

BlueBot þjarkur

BlueBot þjarkarnir bjóða upp á marga skemmtilega kosti við forritunarkennslu í leikskólum og yngri stigum grunnskóla.

Kennaradagar

Vorið 2017 voru haldnir svokallaðir Kennaradagar í Vísindasmiðju Háskóla Íslands. Um þrjátíu grunnskólakennarar fengu boð um að sækja kennaradaga og kynnast því nánar hvernig starfsfólk Vísindasmiðjunnar tekur á móti grunnskólahópum og fjallar um sínar sérgreinar.

Um morguninn kynntist hópurinn dagskránni í efnafræði, jarðfræði og eðlisfræði; og eftir hádegi var stjörnufræðin kynnt og Ljósakassi Vísindasmiðjunnar.