Dulkóðun

Kennarasmiðja um dulkóðun

Vinnusmiðja fyrir stærðfræðikennara á unglinga- eða framhaldsskólastigi sem vilja kynnast skemmtilegum aðferðum til að dulkóða skilaboð og stærðfræðinni sem liggur þeim að baki.

Í smiðjunni leika þátttakendur sér með alls konar dulmál og skoða hvernig þau virka, hvernig hægt er að senda leynileg skilaboð, hvernig tákna má texta og tölur og af hverju það skiptir okkur máli. Farið verður í m.a. dulkóðunaraðferðirnar pig pen, Caesar cipher, Playfair, Morse-kóða og sitthvað fleira.