Fjölmargir gestir heimsóttu Vísindasmiðjuna á laugardaginn var, en þá var Háskóladagurinn haldinn hátíðlegur. Ungir sem aldnir fjölmenntu í Vísindasmiðjuna og kynntu sér þar ýmis tæki og tól undir handleiðslu starfsmanna Vísindasmiðjunnar. Hinir fjölmörgu speglar sem eru í Vísindasmiðjunni vöktu lukku, og eins Róló Pendúla og öll hin tækin og tólin sem eru til sýnis. Þennan dag var einnig opnað sérstakt myrkraherbergi í tilefni af Alþjóðlegu ári ljóssins, og vakti það ekki síður hrifningu gestanna.

Vísindasmiðjan er alltaf vinsæll viðkomustaður fyrir forvitnar fjölskyldur þá daga sem hún er opin öllum. Þennan dag var engin undantekning og starfsfólkið hafði í nægu að snúast allan daginn. 

Takk kærlega fyrir komuna, þið sem kíktuð til okkar á Háskóladaginn. Að sjálfsögðu verður Vísindasmiðjan aftur með opið hús, svo þið sem misstuð af í þetta skiptið fáið tækifæri áður en langt um líður til að kíkja til okkar.