Dagskrárgerðarmenn úr sjónvarpsþættinum Landanum litu við í Vísindasmiðjunni nýlega, vegna umfjöllunar sinnar um sólmyrkvann sem verður þann 20. mars næstkomandi. Í Vísindasmiðjunni tók Sævar Helgi, stjörnufræðikennari á móti dagskrárgerðarfólkinu og svaraði ýmsum spurningum tengdum þessum merkilega atburði sem fjölmargir bíða spenntir eftir. Þátturinn var sendur út í gærkvöldi og er aðgengilegur hér.