Vísindasmiðjan var opin fyrir gesti og gangandi síðastliðinn laugardag en þá var FIRST LEGO League keppnin haldin í Háskólabíói. Þetta var í ellefta skiptið sem keppnin var haldin hér á landi og tóku nítján lið grunnskólanemenda alls staðar af landinu þátt í keppninni. Þema keppninnar í ár var úrgangur er auðlind og forrituðu liðin LEGO þjarka til að leysa þrautir tengdar þemanu. 

Mikið var um að vera í húsinu þennan dag. Auk verkefnanna sem keppendur leystu gátur þeir og aðrir gestir fræðst um kappakstursbíl Team Spark, spreytt sig á vindmyllusmíð og þá sýndi Sprengju-Kata einnig alls konar skemmtilegar efnafræðitilraunir. 

Inni í Vísindasmiðjunni var hægt að leika sér að kúlubrautum, spreyta sig á þrautum, blanda litum ljóss, skoða margvíslega spegla, og kynnast skemmtilegum eiginleikum raf- og segulsviðs.