Í sumar hefur verið unnin ný vefsíða fyrir Vísindasmiðjuna. Á nýrri síðu er ætlað að hafa ítarlegri upplýsingar um heimsóknir í smiðjuna, ítarefni úr fyrirlestrum og útskýringar á virkni tækjanna svo eitthvað sé nefnt. Með þessu móti geta nemendur rifjað upp eða kafað dýpra í það efni sem þau hafa kynnst í heimsókn í Vísindasmiðjuna. Einnig er áætlað að hafa á síðunni ábendingar um vísindatengt námsefni, tilraunir og fleira sem kennarar geta nýtt sér í kennslu í kringum heimsóknir í smiðjuna. Allar ábendingar um efni eru vel þegnar.