Fyrir skömmu var haldin opnunarhátíð Alþjóðlegs árs ljóssins í Háskóla Íslands. Starfsfólk Vísindasmiðjunnar kynnti ýmis tæki og tól sem tengjast ljósi á einhvern hátt fyrir áhugasömum gestum í tilefni dagsins.
Ótal viðburðir eru fyrirhugaðir á Alþjóðlegu ári ljóssins. Á meðal þess sem boðið verður upp á er ljósakassi með skemmtilegum tækjum og tilraunum fyrir börn á grunnskólaaldri, landsverkefni um myrkurgæði, ljósmyndasýningar, stjörnuskoðun í beinni útsendingu, fyrirlestrar og ráðstefnur.
Ljósið mun einnig skipa stóran sess í Vísindasmiðjunni í ár, enda fjölmargt skemmtilegt í vísindunum sem tengist ljósi.